22. maí 2007

hvolparnir eru fæddir

Úffffff
Þetta er búinn að vera langur og strangur dagur.
Eftir ca 4 tíma yfirsetu byrjaði hún Daría að rembast og eftir mikli átök og óhljóð
kom sá fyrsti sem sannarlega ruddi leiðina því hinir komu strax á eftir.
3 stelpur og 2 strákar, ein stelpan er ansi lítil en ég geri mitt besta til að halda lífi í henni,passa uppá að hún sé á spena.
Það var mikil spenningur á heimilinu hinir hundarnir voru svo forvitnir og Perlu langað virkilega að komast í hvolpana allavega athuga þetta allt saman, en þau voru send að heiman rétt á meðan á þessu stóð og svo eru þau komin heim núna, allt að róast.
Það er alveg sama hvað maður fer oft í gegum að taka á móti goti það tekur alltaf jafn mikið á taugarnar,ég þurfti að hringja í læknastofuna 5 eða 6 sinnum og alltaf var tekið vel á móti mér og Hanna talaði mig í gegnum þetta allt saman.
Hérna eru myndir af litlu dúllunum með mömmu sinni,svo komu sömu myndirnar upp aftur en þetta eru svo flottar myndir að það er alltí lagi :)


Daría að gjóta