8. október 2007

Húrra Húrra Húrra

Jæja nú er sýningin afstaðin :-)
Þetta var alveg órúlega skemmtilegur dagur, og ekki hægt að segja annað en að það hafi gengið vel hjá Merkurlautar-ræktun.
Við áttum Besta rakka tegundar sem er Merkurlautar-Dreki
svo var besta tík tegundar hún Daria Misurata
nú hann Merkulautar-Hómer(Tobbi) var besti hvolpur 4-6 mán og síðast en ekki síst
var Merkurlautar-ræktun með besta ræktunarhóp dagsins.
Stelpurnar sem sýndu ræktunarhópinn minn stóðu sig alveg frábærlega vel ,þær voru svo flottar og slakar enda skilaði það sér greinilega.
Það er greinilegt að við erum á réttri leið með ræktunina okkar,það var órtúlega flott að Dreki skyldi vinna pabba sinn, þetta er akkútar það sem við viljum.
Meistari Tínó stóð sig vel eins og alltaf og eins og sjá má á afkvæmum hans er hann frábær hundur og er að gefa flotta hvolpa.
Hún Fanndís var að sýna í fyrsta skipti og það var nú eins og hún hafi aldrei gert annað frábært hjá henni.
Myndir koma seinna.


Haustsýning HRFÍ