28. febrúar 2007

Merkurlautar-Gosi steinsofandi!

Fréttir af Hvolpum

Nú eru litlu dúllurnar orðnar 12 daga gamlir og stækka ótrúlega mikið.
Þeir eru farnir að heyra aðeins en augun eru ekki komin, það gerist örugglega á næstu dögum:-)
Þau þyngjast mjög vel, eru öll orðin + 400 grömm og Geisli er +500
Við tókum smá mynd-skot í dag af Grímu og Gosa.

Við erum að taka þátt í sýningu á laugardaginn, ætlum að sýna Daríu og Erró það er mikil spenna fyrir þessa sýningu og alltaf gamnan að fá sem flesta áhorfendur.

24. febrúar 2007

Engar fréttir, góðar fréttir

Eins og ég segi, þá er ósköp lítið að gerast annað en að allt gengur eins og í sögu.
Hvolparnir stækka og dafna vel,enda eru þeir alltaf á spena.

Þyngdin á þeim hefur ca tvöfaldast og eru þeir að ná 400gr markinu,reyndar er einn orðinn 430 gr, algjör bolti.

kveðja Margrét

21. febrúar 2007

MYNDIR

Héðan er allt gott,hvolparnir stækka og braggast. Hafa ótúlega yfirferð ekki nema 5 daga gamlir.
Ég tók nokkrar myndir af þeim í dag, það er ekki mjög auðvelt að taka myndir af þeim því þeir eru alltaf á iði litlu krílin.
En þér koma myndirnar.


20. febrúar 2007

Hvolpa-fréttir

Nú eru litlu dúllurnar orðnir 4 daga og allt gengur vel. Þau hafa þyngst vel enda alltaf á spena í vöku og svefni.!!!
Mamman er með þvagfærasýkingu en er komin með réttu lyfin svo að ég á ekki von á að það verði til vandræða.Hún stendur sig eins og hetja þrátt fyrir skurð og sýkingu.
Á morgun verða myndir:)

18. febrúar 2007

Hvopla-fréttir

Hér á Háteigsveginum gengur allt vel og hvolparnir dafna vel.
Ég hef ekki heyrt í þeim síðan á föstudag hún Perla er pottþétt super-mamma, hreinsar þá og liggur yfir þeim.

nú erum við búin að gefa þeim nöfn og vikta þá, fann loksins viktina (var að flytja), og þeir eru í flottri þyngd.
Merkurlautar-Gosi er 224 gr.
Merkurlautar-Gríma er 227 gr.
Merkurlautar-Geisli er 244 gr og
Merkurlautar- Garpur er 210 gr svo ætla ég að leyfa ykkur að fylgjast með þyngdaraukningu og öðrum framförum.

Hér eru svo myndir af þeim að sjúga mömmu sín, sem þeim finnst best af öllu.


16. febrúar 2007

Hvolpar fæddir!!!!!!

Jæja nú er hún Perla búin að eignast hvolpana sína. Eftir langa og stranga nótt var ákveðið að fara uppá spítala með hana Perlu því það var ekkert að gerast:(. Þegar þangað var komið tók við tilrauna tími þ.e. prófa að gefa henni kalk og bíða og svo var henni gefið oxitocin en ekkert gerðist, svo það næsta í stöðunni var keisari sem gekk vel. Það komu 3 strákar og 1 stelpa, náttúrulega rosalega flottir:) örugglega flottustu hvolparnir.
Perla er algjörlega útúr heiminum greyið, sefur bara og hvolparnir grenja útí eitt og leita að mjólk. En hér eru svo myndir af undrunum litlu.


14. febrúar 2007

Perlu-fréttir

Meiri frétti af Perlu, hún er enn ekki búin að gjóta en þetta hlítur að fara að styttast!Hún er miklu rólegri núna,sefur meirihluta dagsins liggur mikið undir rúmi, ætli hún vilji ekki eignast hvlopana sína þar uss uss það gæti orðið snúið allavega fyrir okkur við komumst ekki fyrir undir rúmi. Ég tók mynd af henni þar sem hún er að prófa got-kassann sinn, ég vona að ún vilji hann þegar kemur að þessu.



13. febrúar 2007

Perla komin með mjólk

Jæja nú er perla komin með mjólk sem þýðir að NÚ styttist í þetta hjá henni dúlluni.
Það er búið að gera bæli handa henni en hún er nú ekkert voða spennt fyrir því allavega ekki ennþá.
Ég er búin að vera að gefa henni hvolpamjólk og auka skammta af mat og próteini og hún stækkar alveg rosalega.