22. apríl 2007

hvolpa-kveðja

Jæja nú eru 3 hvolpar farnir og Gosi er einn eftir en fer á þriðjudaginn.
Ég er búin að fá fullt af pósti og myndum frá nýjum eigendum og allt gengur eins og í sögu, ég veit að það á eftir að ganga vel með Gosa hann er svo geðgóður og flottur strákur. Við söknum þeirra ótrúlega mikið, enda búin að hafa mikið fyrir þeim og gengið þeim í móðurstað að miklu leiti. Mér finnst ég eiga miklu meira í þeim en örðum hvolpum sem hafa verði hjá mér.
Ég ætla bara rétt að vona að ég fái meira af myndum og pósti. :-)



Gosi

12. apríl 2007

námskeið

Jæja nú eru allir búnir að fara á námskeið hjá henni Sif.
Gott námskeið þar sem farið var yfir helstu uppeldisatriði sem hafa ber í huga þegar hvolpur kemur heim í fyrsta skipti.
Og auðvitað voru allir litlu hvolparnir okkur til mikilla gleði höguðu sér alveg eins og hvolpar eiga að gera léku sér og skreyttu gólfið til skiptis :-)

hvolpanámskeið

Hvolparnir að leika við Ísak


Barnabarn og hvolpar að leika í garðinum

4. apríl 2007

Hvolpar hjá Lækninum

Nú í dag fóru hvolparnir í fyrstu sprautuna sína, og fengu skoðun og örmerkingu. Þeir stóðu sig svakalega vel og heyrðist ekki múkk í þeim við örmerkinguna. Þeir eru allir orðnir yfir tvö kíló. Læknirinn sagði að þeir væru allir hraustir og fínir, eins og þeir eiga að vera.

Læknaferð