29. maí 2007

Dúllufréttir

Nú er hvítasunnuhelgin liðin og við komin heim úr sveitinni.
Litlu dúllurnar stækka ótrúlega, þyngsti er orðin 330 gr og minnsta er 150 gr þannig að allir hafa þyngst nokkuð jafnt miðið við eigin þyngd.

Það var mjög gott veður fyrir austan, hundarnir kunnu vel að meta veruna þar og Daría (mamman) var dugleg að vera úti.

En að sjálfsögðu var hún mest inni hjá litlu börunum sínum.Ég tók nokkrar myndir af þeim.


Darí-hvolpar vikugamlir

24. maí 2007

hvolpafréttir!!!!!!!

Þá er önnur nóttin liðin og var aðeins rólegri en sú fyrsta,sennilega er það bara ég sem er aðeins rólegri:-)
En nú er búið að vikta og allir hafa þyngst meira að segja litla dúllan, þau hafa öll þyngst ca 10% af líkamsþyngd sinni sem ég held að sé bara gott, nú er bara að halda uppi sama dampi, þýðir ekkert að slaka á.
Nokkara myndir og ein af litlu dúlluni og stóru systir bara svo þið sjáið muninn.


dagur 2 Dariu-hvolpar

hvolpafréttir

22. maí 2007

hvolparnir eru fæddir

Úffffff
Þetta er búinn að vera langur og strangur dagur.
Eftir ca 4 tíma yfirsetu byrjaði hún Daría að rembast og eftir mikli átök og óhljóð
kom sá fyrsti sem sannarlega ruddi leiðina því hinir komu strax á eftir.
3 stelpur og 2 strákar, ein stelpan er ansi lítil en ég geri mitt besta til að halda lífi í henni,passa uppá að hún sé á spena.
Það var mikil spenningur á heimilinu hinir hundarnir voru svo forvitnir og Perlu langað virkilega að komast í hvolpana allavega athuga þetta allt saman, en þau voru send að heiman rétt á meðan á þessu stóð og svo eru þau komin heim núna, allt að róast.
Það er alveg sama hvað maður fer oft í gegum að taka á móti goti það tekur alltaf jafn mikið á taugarnar,ég þurfti að hringja í læknastofuna 5 eða 6 sinnum og alltaf var tekið vel á móti mér og Hanna talaði mig í gegnum þetta allt saman.
Hérna eru myndir af litlu dúllunum með mömmu sinni,svo komu sömu myndirnar upp aftur en þetta eru svo flottar myndir að það er alltí lagi :)


Daría að gjóta

Daría komin í gotkassann sinn

Jæja loksins er komið að því!!!!
Nú er hún Daría orðin veik, hitinn kominn í 36,5 og hun er byrjuð að anda.
Hún er nú ósköp góð litla skinnið liggur bara í kassanum sínum og kíkir öðruhvoru hvort ég sé örugglega ekki á mínum stað :-).
Þetta er mjög spennandi!!!!


Daría að gjóta