25. júlí 2007

Kveðja

Nú er komið að því að allir hvolparnir eru að fara :-( það er alltaf erfitt en um leið líka smá léttir. Því er ekki að neita að þetta er mikil vinna en gleðin og ánægjan er svo mikil að maður gleymir því fljótt.
Þessir hundar eru að gefa svo mikið af sér þeir eru yndislegir og biðja um lítið til baka, annað en klapp og væntumþykju.
Ég hef verið mjög heppin með mína hvolpa, þeir hafa verið hraustir og ég hef aldrei (sjö níu þrettán) misst hvolp, tveir hafa fæðst andvana. Enginn af hvolpunum mínum eru með undirbit eða aðra galla og þetta kalla ég heppni og svo auðvitað að ég er að nota mjög góða einstaklinga, hrausta og heilbrigða.Auðvitað á ég eftir að upplifa óhöpp í sambandi við got það er nokkuð öruggt en það ber að þakka það sem maður hefur.

Hekla er ein eftir núna fer fljótlega. Það gengur mjög vel hjá þeim sem eru farnir þ.e. hjá Hetju og Hollý hinir eru bara nýfarnir hef ekkert heyrt, en ég á ekki von á öðru en að það gangi vel.
Svona að gamni læt ég fylgja eina mynd af Tínó.


tino og hekla

23. júlí 2007

Útihvolpar

Nú erum við komin úr fríinu, búin að vera í Mallorca veðri á Íslandi í 2 vikur alveg hreint ótrúlegt.Hvolparnir hafa varla farið inní hús s.l.tvær vikurnar orðnir algjörir útihvolpar.

Þeir eru þvílíkt fjörugir og orðnir mjög skemmtilegir,hafa reyndar alltaf verið skemmtilegir:-)

Hetja og Hollý eru farnar frá okkur og það gengur mjög vel hjá þeim að venjast nýjum eigendum og aðstæðum.

Á morgun fer Hamlet svo það fer að verða asni tómt hjá okkur hérna.


útihvolpar og uppstillingar



útihvolpar og uppstillingar

11. júlí 2007

Sprautur og örmerking

Jæja nú er læknisheimsóknin búin.
Allt gekk að óskum, en ég gleymdi myndavélinni:-( ekki alveg í lagi!!!!, en allavega þeir voru svo góðir heyrðist ekki í þeim s.s stóðu sig eins og hetjur, þau voru ósköp þreytt þegar við komum heim sváfu í 3 tíma litlu greyin.
Strákarnir eru báðir með 2 eistu eins og vera ber og stelpurnar (nottulega) fullkomnar.
Svo að nú er allir örmerkti og bólusettir og að verða til í slaginn.
Nú erum við að fara í sveitina og ætlum að vera eitthvað, gestir velkomnir:-)


hvolpar í búrinu

10. júlí 2007

7 vikna

Það eru komnar 7 vikur! ótrúlegt! tíminn flýgur þegar maður skemmtir sér :-) það er pottþétt.
En annars er bara allt gott frá okkur hvolpunum þeir þroskast eðlilega og erum orðnir mjög óþekkir eins og lög gera ráð fyrir.
Þetta eru alveg einstaklega skemmtilegir hvolpar fjörugir og vakandi þeir fara orðið í ævintýraferðir og týnast, en eru aldrei hræddir s.s mjög duglegir.
Á morgun fara þeir í lækisskoðun, bólusetningu örmerkingu og ormahreinsun myndavélin verður tekin með.


hvolpar



hvolpar

3. júlí 2007

Hressir hvolpar!

Í dag eru 6 vikur síðan litlu krúttin litu dagsins ljós.
Fyrir 4.vikum voru þeir svo miklir hvívoðungar ,nú eru þeir orðnir óþektarormar, ef svo mikið sem heyra í mér byrja þeir að væla, vilja koma fram á gólf að leika og pissa og kúka allt út.

Ég var að vikta þá: Hollý er 1,3 kg, Hetja er 0,9 kg, Hekla er 1,5 kg, Hómer er 1,7 kg og Hamlet er 1,6 þannig allt gengur vel.
Nú er það skemmtilegasta sem þeir gera er að rífa dagblöðin niður alveg merkilegt þetta gera allir hvolpar allavega allir hvolpar hjá mér:-)
Svo eru þetta svo mikil krútt að allt sem þeir gera er bara krúttlegt.

Við vorum í sveitinni um helgin og þeir voru nánast á pallinum alla helgina veðrið var bara frábært.Nú styttist óðum í að þeir fari í þessari viku geta þeir farið í heimsókn til nýrra eigenda í smá tíma.


hvuttaleikur