26. september 2007

Berlín

Um daginn kom hún Berlín til okkar í heimsókn,ég snyrti hana smá og svo átti hún að fara heim en eigandinn kom ekki að ná i hana okkur til mikillar ánægju og var ég mikið að spá í að stela henni, uss María hefði ekkert fattað það hún á 2 hunda!:)
En þegar Berlín kom, virkaði hún ekkert mjög ánægð, en það tók hana ekki nema ca 5 mín og fá mömmu gömlu að leika á fullu og svo var það bara leikur allann daginn alveg rosalega gaman og svo þegar Perla þufti að hvíla sig nú, þá snérist Berlín bara hringinn í kringum sjálfa sig, alveg hreint ótrúleg þessi tík hún er svo skemmtileg.


Berlín

Sýningarþjálfun

Á laugardaginn síðasta vorum við með sýningarþjálfun fyrir hundana okkar, það mættu 5 hundar og þar að auki vorum við með 2. Þetta gekk bara mjög vel og ég held að allir hafi verið ánægðir með þetta uppátæki okkar. Það er í skoðun hvort og hvenær við höfum næstu sýningarþjálfun.


sýningarþjálfun

12. september 2007

Komin til Íslands

Nú er hún litla Emma komin til landsins, farin í einangrun og kemur heim eftir ca 4 vikur.:-(
Það var mjög gaman að sækja hana og kynnast henni svolítið við vorum með henni í 3 daga , við keyrðum frá Pólandi til Berlínar og gistum á leiðinni og hún Emma er ótrúlega góð við vissum ekki af henni á nóttuni,svo var bara farið út á morgnana og stykkin gerð og ekkert mál sem sagt.
Hún er mjög geðgóð og fjörug og það fer sko ekkert framhjá henni, eins og schnauzer á að vera og svo finnst henni best af öllu að kúra hjá okkur og láta kela við sig.
Svo nú er bara að bíða spennt eftir henni.


Emma á leið heim