14. október 2007

Í Heiðmörk

Í dag fórum við í uppí Heiðmörk í smá rigningu og roki en það skiptir ekki málá, bara að klæða sig :-)
En það gengur alveg rosalega vel meða hana Emmu hún er svo góð og yndislegur hundur, og passar vel inn hópinn algjört keludýr.
Við tókum nokkrar myndir.



Í göngu

13. október 2007

Emma

Nú er hún Emma búin að vera hjá okkur í 3 daga og hún er alveg ótrúleg.
Hún er mjög vakandi það fer ekkert framhjá henni og svo er hún líka smá prakkari sem er bara gaman, hún er að stela sokkun og draga teppin út um alla íbúð, svo hangir hún í okkur buxnaskálmum og öðrum fötum.Hún minnir mig svilítið á Freyju mína þ.e. útlitið og karakterinn minnir mig á Berlín og Bellu, hún er s.s mjög skemmtileg.
Hún og Perla eru duglegar að leika og hún er reyndar búin að fá alla hundana á heimilnu til að leika við sig meira að segja Tínó sem er ekkert að leika við hvern sem er.


Emma

8. október 2007

Húrra Húrra Húrra

Jæja nú er sýningin afstaðin :-)
Þetta var alveg órúlega skemmtilegur dagur, og ekki hægt að segja annað en að það hafi gengið vel hjá Merkurlautar-ræktun.
Við áttum Besta rakka tegundar sem er Merkurlautar-Dreki
svo var besta tík tegundar hún Daria Misurata
nú hann Merkulautar-Hómer(Tobbi) var besti hvolpur 4-6 mán og síðast en ekki síst
var Merkurlautar-ræktun með besta ræktunarhóp dagsins.
Stelpurnar sem sýndu ræktunarhópinn minn stóðu sig alveg frábærlega vel ,þær voru svo flottar og slakar enda skilaði það sér greinilega.
Það er greinilegt að við erum á réttri leið með ræktunina okkar,það var órtúlega flott að Dreki skyldi vinna pabba sinn, þetta er akkútar það sem við viljum.
Meistari Tínó stóð sig vel eins og alltaf og eins og sjá má á afkvæmum hans er hann frábær hundur og er að gefa flotta hvolpa.
Hún Fanndís var að sýna í fyrsta skipti og það var nú eins og hún hafi aldrei gert annað frábært hjá henni.
Myndir koma seinna.


Haustsýning HRFÍ