2. mars 2008

HRFÍ Sýning

Nú er HRFÍ sýningin afstaðin og var þetta mjög flott sýning í alla staði yfir 800 hundar voru skráðir,
Okkur gekk mjög vel ekki hægt að segja annað, áttum bæði besta rakkann sem er Hamlet og er aðeins 9 mán, og bestu tíkina.
Daria var besti hundur teg, og fékk sitt 3 CACIB, stóð sig alveg rosaleg vel litla dúllan.
Allir okkar hundar sem voru á þessari sýningu fengu excelent
Það er gaman að segja frá því að Emma mín var önnur besta tík og Hetja Dís í 3 sæti þannig að við áttum allar þrjár bestu tíkur tegundarinna :-) sem að má teljast mjög gott.Við getum svo sannarlega vel við unað.
Aðeins eitt sem ég klikkaði á og það er að taka með myndavél algjör draugur.