16. mars 2008

Fréttir af hundum

Jæja þá er hann kominn til landsins hann Krummi, kominn í einangrun litla greyið, en það verður nú ekki lengi að líða.Hann er alveg rosalega fínn og einstaklega blíður hundur, hann ber nafn sitt vel þ.e Lover boy.Við smelltum nokkrum myndun af honum á pólskri og þýskri grund.
Og svo fórum við í bústaðinn um helgina veðrið var geggjað og hundarnir kunnu svo sannarlega að meta það.





Krummi kominn

2. mars 2008

HRFÍ Sýning

Nú er HRFÍ sýningin afstaðin og var þetta mjög flott sýning í alla staði yfir 800 hundar voru skráðir,
Okkur gekk mjög vel ekki hægt að segja annað, áttum bæði besta rakkann sem er Hamlet og er aðeins 9 mán, og bestu tíkina.
Daria var besti hundur teg, og fékk sitt 3 CACIB, stóð sig alveg rosaleg vel litla dúllan.
Allir okkar hundar sem voru á þessari sýningu fengu excelent
Það er gaman að segja frá því að Emma mín var önnur besta tík og Hetja Dís í 3 sæti þannig að við áttum allar þrjár bestu tíkur tegundarinna :-) sem að má teljast mjög gott.Við getum svo sannarlega vel við unað.
Aðeins eitt sem ég klikkaði á og það er að taka með myndavél algjör draugur.