5. janúar 2009

HVOLPAR

Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla!!!!

Nú hefur það verði staðfest að hún Daría mín er hvolpafull,við vitum ekki hvussu margir þeir eru, en það kemur bara í ljós.

Þið sem hafið áhuga þá eru Daría og Krummi foreldrar af þessu goti,sem er mjög spennandi.
Pabbi Krumma er svo eitthvað sé nefnt, Gloris Kiss in the Ring sem er multi meistari, WW og Best in show margoft útum allann heim.Sennilega einn flottasti Dverg-schnauzer sem hefur fæðst hingaðtil.Krummi hefur farið á sýningar og staðið sig mjög vel, hann er ungur ekki nema eins og hálf árs og á eftir að sýna sig, í framtíðinni. Daría er íslenskur meistari og alþjóðlegur og hefur staðið sig vel á sýningum,margoft verið besti hundur tegundar og verið 2.besti hundur í grúppu .2 og það hefur enginn annar dverg-schnauzer afrekað. Hún er 4.ára síðan í okt og þetta er hennar annað got hjá mér.
Skapgerð þeirra Daríu og Krumma er mjög góð, þau eru bæði einstaklega ljúf og algjör keludýr,þannig að það er ekki við öðru að búast en, litlum loðnum keludýrum.
Að sjálfsögðu eru þau bæði búin að fara í augnskoðun og eru þau hrein af öllum augnsjúkdómum.