27. janúar 2009

Ilmur litla


Nú er Ilmur litla orðin 2 daga gömul og hún darnar vel. Ilmur er mjög dugleg að drekka er eiginlega alltaf á spena. Á myndinni sést hvað er hennar uppáhald stelling og svo hefur hún úr öllum spenunum að velja svo að hún sveltur ekki þessi litla dama.
Hún er mjög fíngerð, þrátt fyrir að vera fitubolla enda hvað er hægt annað þegar maður er einbirni. Ég bíð spennt eftir að hún vaxi út grasi og verði foreldrum sínum til sóma enda ekkert smá flottir foreldrar. Sennilega er þetta flottasta ættbók sem hefur verið gefin út á Íslandi hingað til. Þessi dama fer pottþétt á sýningar, að monta sig.