28. júní 2009

Hvolpa-fréttir

Á fimmtudaginn síðasta fórum við Daría í sónar og kom í ljós að hún er með að minnsta kosti 5 stykki kannski fleirri, ég vona nú ekki það er alveg ágætt að fá 5 stykki.
Þegar Daría átti 5 hvolpa síðast var það H-got sem er fætt 22.maí 2007. Þetta got hefur allt farið á sýningu nema ein stelpa hún Hekla, til að gera langa sögu stutta þá hafa allir þessir hvlopar verið að fá excellent og ég veit að Hekla fengi það líka því hún er mjög flott. Sem sagt af fimm hvolpum eru allir flottir sem er nú mjög óvenjulegt í ræktun.

Þetta verður Í-got þannig að hugmyndir af nöfnum eru vel þegnar :).
Hvolparnir munu fæðast ca 25 júlí og mikil spenna er hérna á heimilinu, og pabbinn er eins og á þar síðasta gotinu hennar ISCH INTERCH Klanens Venltino, sannkallað meistara got. Og ég get sagt ykkkur það að skapið í þessum hvolpum, verður einstaklega gott og feldurinn kolsvartu og strír. Pottþétt flottir hvolpar og nú er bara að krossa putta og vona að allt fari vel.