Hvolpa-fréttir
Í dag eru hvolparnir 3 vikna og það gengur mjög vel með þá.
Ég er aðeins að byrja að kynnast þeim og sjá karakter mismun á þeim (mjög gaman).
Þeir fengu graut í gær í fyrsta skipti, og fannst hann góður, í dag var greinilegt að þeir vissu hvað í vændum var, ekkert smá fljótir að læra.
Perla (hjálparhellan hennar Daríu) sér um að hreinsa þá eftir matinn :D hún er nú betri en enginn. Svo fer hún reglulega til þeirra og lætur þá pissa og þrífur, hún er svo þrifin það virðist sem hennar skítastuðull sé talsvert lægri en hjá Daríu, ekki það að hún er að hugsa mjög vel um krílin sín, en henni finnst þeir ekkert þurfa að vera svo svakalega hreinir.:D

<< Heim