29. janúar 2009
27. janúar 2009
Ilmur litla
Nú er Ilmur litla orðin 2 daga gömul og hún darnar vel. Ilmur er mjög dugleg að drekka er eiginlega alltaf á spena. Á myndinni sést hvað er hennar uppáhald stelling og svo hefur hún úr öllum spenunum að velja svo að hún sveltur ekki þessi litla dama.
Hún er mjög fíngerð, þrátt fyrir að vera fitubolla enda hvað er hægt annað þegar maður er einbirni. Ég bíð spennt eftir að hún vaxi út grasi og verði foreldrum sínum til sóma enda ekkert smá flottir foreldrar. Sennilega er þetta flottasta ættbók sem hefur verið gefin út á Íslandi hingað til. Þessi dama fer pottþétt á sýningar, að monta sig.
25. janúar 2009
Merkurlautar-ILMUR
Kl; 06 í morgun leit dagsins ljós hún Ilmur.
Eftir langt og strangt ferli kom hún loksins ,og þar sem hún er ein er hún stærri en snasinn er venjulega, 277.gr, svo að það gekk illa fyrir Daríu að koma henn i frá sér en það hafist loksins. Hún er algjörlega kolsvört ekki eitt einasta hvít hár í henni og rosalega dugleg fór strax á spena, og tók að krafir að sjúga.Ég ekki heyrt í henni ennþá enda ein um alla spenana og þarf sennilega ekki að hafa mikið fyrir lífinu, og vonandi verður það þannig allt hennar líf.

5. janúar 2009
HVOLPAR
Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla!!!!
Nú hefur það verði staðfest að hún Daría mín er hvolpafull,við vitum ekki hvussu margir þeir eru, en það kemur bara í ljós.
Þið sem hafið áhuga þá eru Daría og Krummi foreldrar af þessu goti,sem er mjög spennandi.
Pabbi Krumma er svo eitthvað sé nefnt, Gloris Kiss in the Ring sem er multi meistari, WW og Best in show margoft útum allann heim.Sennilega einn flottasti Dverg-schnauzer sem hefur fæðst hingaðtil.Krummi hefur farið á sýningar og staðið sig mjög vel, hann er ungur ekki nema eins og hálf árs og á eftir að sýna sig, í framtíðinni. Daría er íslenskur meistari og alþjóðlegur og hefur staðið sig vel á sýningum,margoft verið besti hundur tegundar og verið 2.besti hundur í grúppu .2 og það hefur enginn annar dverg-schnauzer afrekað. Hún er 4.ára síðan í okt og þetta er hennar annað got hjá mér.
Skapgerð þeirra Daríu og Krumma er mjög góð, þau eru bæði einstaklega ljúf og algjör keludýr,þannig að það er ekki við öðru að búast en, litlum loðnum keludýrum.
Að sjálfsögðu eru þau bæði búin að fara í augnskoðun og eru þau hrein af öllum augnsjúkdómum.