Hún Daría eignaðist hvolpa í morgun á milli 8.30 og 13.00 gekk alveg rosalega vel, heyrist eiginlega ekkert í henni, aðeins með fyrsta hvolpinn :-).
Fyrst kom stelpa sem heitir Merkurlautar-Íssól síðan, aðeins 15 mín seinna kom bróðir hennar sem heitir Merkurlautar-Ísidór. Ca 30 mín seinna kom önnur stelpan sem heitir Merkulautar- Ísdís og rétt á eftir henni kom hann Mekrulautar-Ísmar, stuttu seinna kom þriðji strákurinn hann Merkurlautar-Ísar pínulítill og krúttlegur og síðast en alls ekki sístur heilum klukkutíma seinna kom hann Merkurlautar-Ísgeir.
Mér sýnist allir vera duglegir að koma sér á spena og Daría er greinilega orðin vel sjóuð í þessu,stendur sig eins og hétja, umvefur þá móðurást.
Meira um Í-got á næstudögum.