8. september 2009
30. ágúst 2009
Myndir úr sveitinni
Hér koma nokkara myndir af hvolpunum mínum, sem við tókum í sveitinni um helgina
23. ágúst 2009
17. ágúst 2009
12. ágúst 2009
Hvolpa-fréttir
Í dag eru hvolparnir 3 vikna og það gengur mjög vel með þá.
Ég er aðeins að byrja að kynnast þeim og sjá karakter mismun á þeim (mjög gaman).
Þeir fengu graut í gær í fyrsta skipti, og fannst hann góður, í dag var greinilegt að þeir vissu hvað í vændum var, ekkert smá fljótir að læra.
Perla (hjálparhellan hennar Daríu) sér um að hreinsa þá eftir matinn :D hún er nú betri en enginn. Svo fer hún reglulega til þeirra og lætur þá pissa og þrífur, hún er svo þrifin það virðist sem hennar skítastuðull sé talsvert lægri en hjá Daríu, ekki það að hún er að hugsa mjög vel um krílin sín, en henni finnst þeir ekkert þurfa að vera svo svakalega hreinir.:D
26. júlí 2009
Í-got fréttir
Í dag eru hvolparnir orðnir 3 daga gamlir. Þeir eru að braggast vel hafa þyngst frá 30 grömmum uppí 75 grömm. Daría er að standa sig mjög vel og er endalaust svöng. Nú set ég inn myndir í vikunni.
23. júlí 2009
Hvolplar fæddir 23.júlí 2009
Hún Daría eignaðist hvolpa í morgun á milli 8.30 og 13.00 gekk alveg rosalega vel, heyrist eiginlega ekkert í henni, aðeins með fyrsta hvolpinn :-).
Fyrst kom stelpa sem heitir Merkurlautar-Íssól síðan, aðeins 15 mín seinna kom bróðir hennar sem heitir Merkurlautar-Ísidór. Ca 30 mín seinna kom önnur stelpan sem heitir Merkulautar- Ísdís og rétt á eftir henni kom hann Mekrulautar-Ísmar, stuttu seinna kom þriðji strákurinn hann Merkurlautar-Ísar pínulítill og krúttlegur og síðast en alls ekki sístur heilum klukkutíma seinna kom hann Merkurlautar-Ísgeir.
Mér sýnist allir vera duglegir að koma sér á spena og Daría er greinilega orðin vel sjóuð í þessu,stendur sig eins og hétja, umvefur þá móðurást.
Meira um Í-got á næstudögum.