Merkurlautarrækt

Dverg-Schnauzer

Uppruni

Dverg-snasinn var upphaflega ræktaður í Þýskalandi til að halda meindýrum í skefjum en í dag finnst snasanum skemmtilegt að elta dótið sitt. Snasinn er ekki plássfrekur en þarf reglulega hreyfingu. Hann er fljótur að læra og finnst gaman í hlýðniþjálfun.

Skapgerð

Dverg-snasinn vekur strax athygli hvert sem hann fer, bæði vegna skapsins og útlitsins. Hann er yfirvegaður og hugrakkur hundur, mjög vingjarnlegur, forvitinn, gáfaður, mannelskur og algjört partýljón! Hann tekur öllum jafnt, hvort sem þeir eru ungir eða aldnir, stórir eða litlir og á það jafnt við menn, hunda og önnur dýr. Snasinn er fjölskylduhollur en eignast alltaf nýja vini hvert sem hann fer. Útlit snasans vekur alltaf athygli. Yfirskeggið og loðnar augabrúnir ýkjast í andliti smáhundsins og gefa honum skoplegt yfirbragð, líkt og góðlegur, gamall karl.
Snasinn fer ekki úr hárum og hentar því oft fyrir fólk sem hefur hundaofnæmi. Regluleg burstun og snyrting er nauðsynleg til að halda stífum feldinum í góðu horfi.
Staðall samkvæmt FCI

Hundar úti að leikaHvolpar