Merkurlautar-Erró
Erró er fæddur 23. febrúar 2006 og er undan Tínó og Perlu. Við ákváðum að eiga hann Erró vegan þess að okkur finnst hann svo fallegur og efnilegur ungur rakki.
En þar sem við höfum Tínó inn á okkar heimili urðum við að koma Erró fyrir á öðru góðu heimili. Það er mjög erfitt að hafa tvo rakka í sama húsi þar sem tíkur eru. Eftir nokkra leit fundum við frábæra fjölskyldu sem við gátum treyst fyrir litla hvolpinum okkar, og við urðum ekki fyrir vonbrigðum. Hann er greinilega algjört dekurdýr en samt látinn fara eftir reglum, þannig viljum við hafa það.
Okkur finnst alltaf gaman að fá hann Erró í heimsókn því hann er svo ljúfur og góður. Erró er búin að fara á 3 sýningar og fengið fína dóma. |