Merkurlautarrækt

Dverg-Schnauzer

Næring og heilsa

Við hjá Merkurlautar-ræktun leggjum mikla áherslu á gott fæði fyrir hundana okkar og gefum þeim aðeins það sem við teljum best fyrir þá. Nú erum við búin að reka okkur á að sama fóðrið hentar ekki endilega öllum svo að við teljum að hver og einn verði að prófa sig áfram og finna hvað er best hverju sinni.

Magn skiptir líka miklu máli og það borgar sig að vikta ofan í hundinn og finna rétta magnið en yfirleitt er gefið upp á fóðurpakningum æskilegt magn per kilo en hafa skal í huga að hundar sem eru hreyfðir mikið þurfa meira.

Það er að okkar mati gott að gefa hundi eggjarauðu og hrátt kjöt öðruhvoru, og eins gefa sumir lýsi eða ólivoliu einstaka sinnum.

Hjá lækni