HAUSTSÝNING

Síðustu helgi var haustsýning HRFÍ, virkilega flott sýning.

Merkurlautar-ræktun var með 8 hunda, og fengu 6 excellent og 2 very good, sem verðu að teljast mjög gott. Emma mín litla frekjan vann Daríu og var besta tík tegundar Daría var í 2 sæti, (skrítinn dómari) þó svo að ég sé mjög ánægð með dómana sem mínir hundar fengu þá fannst mér aðeins gæta ósamræmis hjá dómaranum, en þannig verður þetta nú sennilega alltaf. Þetta er svo huglægt.

Posted in Uncategorized | Comments Off

Hvolpafréttir

Hvolparnir eru orðnir 6 vikna og eru byrjaðir að fara í aðlögun, lítill strákur fór í gæt og gekk mjög vel, og Ísdís fer í dag í aðlögun.

Annars gengur mjög vel með þá þeir eru orðin alveg rosalega skemmtilegir, hlaupa og leika útí eitt. Það er mikið fjör á þessu heimili.

Posted in Uncategorized | Comments Off

Hvolpafréttir

Héðan er allt gott, hvolpar dafna vel og eru um það bil að vera terroristar, færist aldeilis fjör í þá.

Í dag fórum við útí garð það var svo hlítt og notalegt veður og þeir eru ótrúlega duglegir, hafa alltaf verið eins og þeir hafi séu alvanir að vera úti.

Nokkrar myndir:

Posted in Uncategorized | Comments Off

Myndir af hvolpaskottum

Hér koma nokkrar myndir af hvolpunum:

Posted in Uncategorized | Comments Off

Hvolpafréttir

Í dag eru hvolparnir 3 vikna og það gengur mjög vel með þá.

Ég er aðeins að byrja að kynnast þeim og sjá karakter mismun á þeim (mjög gaman).

Þeir fengu graut í gær í fyrsta skipti, og fannst hann góður, í dag var greinilegt að þeir vissu hvað í vændum var, ekkert smá fljótir að læra.

Perla (hjálparhellan hennar Daríu) sér um að hreinsa þá eftir matinn :D hún er nú betri en enginn. Svo fer hún reglulega til þeirra og lætur þá pissa og þrífur, hún er svo þrifin það virðist sem hennar skítastuðull sé talsvert lægri en hjá Daríu, ekki það að hún er að hugsa mjög vel um krílin sín, en henni finnst þeir ekkert þurfa að vera svo svakalega hreinir. :D

Posted in Uncategorized | Comments Off

Í-got fréttir

Í dag eru hvolparnir orðnir 3 daga gamlir. Þeir eru að braggast vel hafa þyngst frá 30 grömmum uppí 75 grömm. Daría er að standa sig mjög vel og er endalaust svöng. Nú set ég inn myndir í vikunni.

Posted in Uncategorized | Comments Off

Hvolplar fæddir 23.júlí 2009

Hún Daría eignaðist hvolpa í morgun á milli 8.30 og 13.00 gekk alveg rosalega vel, heyrist eiginlega ekkert í henni, aðeins með fyrsta hvolpinn :-) .

Fyrst kom stelpa sem heitir Merkurlautar-Íssól síðan, aðeins 15 mín seinna kom bróðir hennar sem heitir Merkurlautar-Ísidór. Ca 30 mín seinna kom önnur stelpan sem heitir Merkulautar- Ísdís og rétt á eftir henni kom hann Mekrulautar-Ísmar, stuttu seinna kom þriðji strákurinn hann Merkurlautar-Ísar pínulítill og krúttlegur og síðast en alls ekki sístur heilum klukkutíma seinna kom hann Merkurlautar-Ísgeir.

Mér sýnist allir vera duglegir að koma sér á spena og Daría er greinilega orðin vel sjóuð í þessu,stendur sig eins og hétja, umvefur þá móðurást.

Meira um Í-got á næstudögum.

Posted in Uncategorized | Comments Off

Daríu-fréttir

Héðan er enn allt rólegt, Daría stækkar þó með hverju daginum.

Það er mikil tilhlökkun að fá þetta got, enda eru rúmlega 2 ár síðan við vorum með stórt got. Síðasta got hjá okkur var einn hvolpur hún Ilmur. Það er engin framleiðsla hérna á hvolpum enda leggjum við mjög mikla áherslu á að umhverfisþjálfa alla okkar hvolpa svo þeir séu sem best undibúnir útí lífið hjá nýjum fjölskyldum.

Í næstu viku verða vonandi komnir frískir og sprækir hvolpar hjá okkur :D

Posted in Uncategorized | Comments Off

Hvolpafréttir

Á fimmtudaginn síðasta fórum við Daría í sónar og kom í ljós að hún er með að minnsta kosti 5 stykki kannski fleirri, ég vona nú ekki það er alveg ágætt að fá 5 stykki.

Þegar Daría átti 5 hvolpa síðast var það H-got sem er fætt 22.maí 2007. Þetta got hefur allt farið á sýningu nema ein stelpa hún Hekla, til að gera langa sögu stutta þá hafa allir þessir hvlopar verið að fá excellent og ég veit að Hekla fengi það líka því hún er mjög flott. Sem sagt af fimm hvolpum eru allir flottir sem er nú mjög óvenjulegt í ræktun.

Þetta verður Í-got þannig að hugmyndir af nöfnum eru vel þegnar :) .
Hvolparnir munu fæðast ca 25 júlí og mikil spenna er hérna á heimilinu, og pabbinn er eins og á þar síðasta gotinu hennar ISCH INTERCH Klanens Venltino, sannkallað meistara got. Og ég get sagt ykkkur það að skapið í þessum hvolpum, verður einstaklega gott og feldurinn kolsvartu og strír. Pottþétt flottir hvolpar og nú er bara að krossa putta og vona að allt fari vel.

Posted in Uncategorized | Comments Off

Fréttir af ILMI “Míu”

Við vorum í sveitinni um helgina og skemmtum okkur vel þar. Ilmur “Mía” er orðin mjög dugleg að vera úti að leika við alla hina hundana, hleypur, hoppar og skoppar um allt.

Posted in Uncategorized | Comments Off