Ilmur í snjónum

Við Ilmur fórum útí snjóninn í dag í góða veðrinu, og hún er orðin svo dugleg litla dúllan.


Posted in Uncategorized | Comments Off

ILMUR 3ja vikna

Nú er hún ILMUR orðin 3ja vikan og gengur mjög vel að stækka og þroskast, hún er frekar róleg og yfirveguð.

Ég tók nokkrar myndir af henni og náði líka mynd af Tínó að heilsa upp á hana, hann er svo prúður alltaf.

En nú er hún ILMUR s.s komin með heimili, svo að nú hefst aðlögun á báða bóga.

Posted in Uncategorized | Comments Off

Ilmur tveggja vikna

Nú er hún ILMUR orðin 14 daga og er 670 grömm.

Og það eru komin augu þessi fínu augu, og svo er hún aðeins farin að labba en allt er mjög rólegt í kringum hana.Það er enginn að leika við :-( nema mamma og hún er ekkert að leika bara hreinsa og gefa. En hún er alveg ótrúlega góð mamma hún Daría.

Posted in Uncategorized | Comments Off

Ilmur í viktun

Hún Ilmur var í viktun í gær og var líka svona sallarógleg. Það gengur mjög vel með hana, hún er algjör draumur,og spennandi að fylgjast með henni. Hún er orðin 335 gr stækkar og stækkar.

Posted in Uncategorized | Comments Off

Ilmur litla

Nú er Ilmur litla orðin 2 daga gömul og hún darnar vel. Ilmur er mjög dugleg að drekka er eiginlega alltaf á spena. Á myndinni sést hvað er hennar uppáhald stelling og svo hefur hún úr öllum spenunum að velja svo að hún sveltur ekki þessi litla dama.

Hún er mjög fíngerð, þrátt fyrir að vera fitubolla enda hvað er hægt annað þegar maður er einbirni. Ég bíð spennt eftir að hún vaxi út grasi og verði foreldrum sínum til sóma enda ekkert smá flottir foreldrar. Sennilega er þetta flottasta ættbók sem hefur verið gefin út á Íslandi hingað til. Þessi dama fer pottþétt á sýningar, að monta sig.

Posted in Uncategorized | Comments Off

Merkurlautar-ILMUR

Kl; 06 í morgun leit dagsins ljós hún Ilmur.

Eftir langt og strangt ferli kom hún loksins ,og þar sem hún er ein er hún stærri en snasinn er venjulega, 277.gr, svo að það gekk illa fyrir Daríu að koma henn i frá sér en það hafist loksins. Hún er algjörlega kolsvört ekki eitt einasta hvít hár í henni og rosalega dugleg fór strax á spena, og tók að krafir að sjúga.Ég ekki heyrt í henni ennþá enda ein um alla spenana og þarf sennilega ekki að hafa mikið fyrir lífinu, og vonandi verður það þannig allt hennar líf.

Posted in Uncategorized | Comments Off

Hvolpar

Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla!!!!

Nú hefur það verði staðfest að hún Daría mín er hvolpafull,við vitum ekki hvussu margir þeir eru, en það kemur bara í ljós.

Þið sem hafið áhuga þá eru Daría og Krummi foreldrar af þessu goti,sem er mjög spennandi.

Pabbi Krumma er svo eitthvað sé nefnt, Gloris Kiss in the Ring sem er multi meistari, WW og Best in show margoft útum allann heim.Sennilega einn flottasti Dverg-schnauzer sem hefur fæðst hingaðtil.Krummi hefur farið á sýningar og staðið sig mjög vel, hann er ungur ekki nema eins og hálf árs og á eftir að sýna sig, í framtíðinni. Daría er íslenskur meistari og alþjóðlegur og hefur staðið sig vel á sýningum,margoft verið besti hundur tegundar og verið 2.besti hundur í grúppu .2 og það hefur enginn annar dverg-schnauzer afrekað. Hún er 4.ára síðan í okt og þetta er hennar annað got hjá mér.

Skapgerð þeirra Daríu og Krumma er mjög góð, þau eru bæði einstaklega ljúf og algjör keludýr, þannig að það er ekki við öðru að búast en, litlum loðnum keludýrum.
Að sjálfsögðu eru þau bæði búin að fara í augnskoðun og eru þau hrein af öllum augnsjúkdómum.

Posted in Uncategorized | Comments Off

VÆNTANLEGT GOT

Um miðjan nóvember voru Daría og Krummi pöruð, enn er ekki komið í ljós hvort pörunin beri ávöxt en það ætti að koma í ljós rétt fyrir jól. SPENNÓ

Læt vita strax og eitthvað er að frétta.

Posted in Uncategorized | Comments Off

Vor í Merkurlaut

Við fórum í Merkurlaut um helgina og við áttum virkilega notalega daga í góða veðrinu.
Hundarnir voru úti alla daga, léku sér og nutu lífsins.

Vor í Merkurlaut (myndaalbúm)

Posted in Uncategorized | Comments Off

Allir í göngu í Straumi

Við fórum í göngutúr í Straumi í góða veðrinu í dag.
Eins og sjá má þá skemmtu hundarnir sér vel og skönnuðu hraunið rækilega. Ég ákvað að setja allar myndirnar inn litirnir voru svo fallegir í dag :-)

Straumur (myndaalbúm)

Posted in Uncategorized | Comments Off