Fréttir af hundum

Jæja þá er hann kominn til landsins hann Krummi, kominn í einangrun litla greyið, en það verður nú ekki lengi að líða.Hann er alveg rosalega fínn og einstaklega blíður hundur, hann ber nafn sitt vel þ.e Lover boy.Við smelltum nokkrum myndun af honum á pólskri og þýskri grund.

Og svo fórum við í bústaðinn um helgina veðrið var geggjað og hundarnir kunnu svo sannarlega að meta það.

Krummi kominn (myndaalbúm)

Posted in Uncategorized | Comments Off

HRFÍ sýning

Nú er HRFÍ sýningin afstaðin og var þetta mjög flott sýning í alla staði yfir 800 hundar voru skráðir.

Okkur gekk mjög vel ekki hægt að segja annað, áttum bæði besta rakkann sem er Hamlet og er aðeins 9 mán, og bestu tíkina.

Daria var besti hundur teg, og fékk sitt 3 CACIB, stóð sig alveg rosaleg vel litla dúllan.
Allir okkar hundar sem voru á þessari sýningu fengu excelent.

Það er gaman að segja frá því að Emma mín var önnur besta tík og Hetja Dís í 3 sæti þannig að við áttum allar þrjár bestu tíkur tegundarinna :-) sem að má teljast mjög gott.Við getum svo sannarlega vel við unað.

Aðeins eitt sem ég klikkaði á og það er að taka með myndavél algjör draugur.

Posted in Uncategorized | Comments Off

Deildarsýning

Jæja þá er deildarsýningin búin, og gekk mjög vel hjá okkur við vorum með 11 hunda og fengum 8 excellent og 3 very good sem verður að teljast mjög gott.

Hamlet var besti hvolpurinn í sínum flokki og Daría var besta tík sýningar en þar sem hún er orðin meistari þá gekk meistarastigið til næstu á eftir henni “heppin hún”.

Deildarsýning (myndaalbúm)

Posted in Uncategorized | Comments Off

Ættarmót

Í dag var ættarmót Merkurlautar-ræktun haldið uppí Heiðmörk.

Hundar og fólk skemmtu sér hið besta þrátt fyrir að veðrið hafi ekki leikið sérstaklega við okkur,en hvað þótt það blási aðeins?Það er nú kominn vetur!!!!

Mætingin var nú ekkert til að hrópa húrra fyrir, en það gengur bara betur næst.

Ættarmót í heiðmörk (myndaalbúm)

Posted in Uncategorized | Comments Off

Snyrtistofa

Héðan er allt gott að frétta, litla Emma er að verða eins og hún hafi alltaf verið hérna.

Hún er fjörug og skemmtilegur hundur,uppátækjasöm og forvitinn alveg eins og snasi á að vera :-)

Nú er ég LOKSINS búin að koma mér fyrir í nýju húsnæði með snyrtistofuna mína, hérna á Háteigsveginum.

Svo nú get ég farið að reita alveg á fullu (eða þannig).

Posted in Uncategorized | Comments Off

Í Heiðmörk

Í dag fórum við í uppí Heiðmörk í smá rigningu og roki en það skiptir ekki málá, bara að klæða sig :-)

En það gengur alveg rosalega vel meða hana Emmu hún er svo góð og yndislegur hundur, og passar vel inn hópinn algjört keludýr.

Við tókum nokkrar myndir.

Í göngu (myndaalbúm)

Posted in Uncategorized | Comments Off

Emma

Nú er hún Emma búin að vera hjá okkur í 3 daga og hún er alveg ótrúleg.

Hún er mjög vakandi það fer ekkert framhjá henni og svo er hún líka smá prakkari sem er bara gaman, hún er að stela sokkun og draga teppin út um alla íbúð, svo hangir hún í okkur buxnaskálmum og öðrum fötum.Hún minnir mig svilítið á Freyju mína þ.e. útlitið og karakterinn minnir mig á Berlín og Bellu, hún er s.s mjög skemmtileg.

Hún og Perla eru duglegar að leika og hún er reyndar búin að fá alla hundana á heimilnu til að leika við sig meira að segja Tínó sem er ekkert að leika við hvern sem er.

Emma (myndaalbúm)

Posted in Uncategorized | Comments Off

Húrra Húrra Húrra

Jæja nú er sýningin afstaðin :-)

Þetta var alveg órúlega skemmtilegur dagur, og ekki hægt að segja annað en að það hafi gengið vel hjá Merkurlautar-ræktun.

Við áttum Besta rakka tegundar sem er Merkurlautar-Dreki svo var besta tík tegundar hún Daria Misurata nú hann Merkulautar-Hómer(Tobbi) var besti hvolpur 4-6 mán og síðast en ekki síst var Merkurlautar-ræktun með besta ræktunarhóp dagsins.

Stelpurnar sem sýndu ræktunarhópinn minn stóðu sig alveg frábærlega vel ,þær voru svo flottar og slakar enda skilaði það sér greinilega.

Það er greinilegt að við erum á réttri leið með ræktunina okkar,það var órtúlega flott að Dreki skyldi vinna pabba sinn, þetta er akkútar það sem við viljum.

Meistari Tínó stóð sig vel eins og alltaf og eins og sjá má á afkvæmum hans er hann frábær hundur og er að gefa flotta hvolpa.

Hún Fanndís var að sýna í fyrsta skipti og það var nú eins og hún hafi aldrei gert annað frábært hjá henni.

Haustsýning HRFÍ (myndaalbúm)

Posted in Uncategorized | Comments Off

Berlín

Um daginn kom hún Berlín til okkar í heimsókn,ég snyrti hana smá og svo átti hún að fara heim en eigandinn kom ekki að ná i hana okkur til mikillar ánægju og var ég mikið að spá í að stela henni, uss María hefði ekkert fattað það hún á 2 hunda! :)

En þegar Berlín kom, virkaði hún ekkert mjög ánægð, en það tók hana ekki nema ca 5 mín og fá mömmu gömlu að leika á fullu og svo var það bara leikur allann daginn alveg rosalega gaman og svo þegar Perla þufti að hvíla sig nú, þá snérist Berlín bara hringinn í kringum sjálfa sig, alveg hreint ótrúleg þessi tík hún er svo skemmtileg.

Berlín (myndaalbúm)

Posted in Uncategorized | Comments Off

Sýningarþjálfun

Á laugardaginn síðasta vorum við með sýningarþjálfun fyrir hundana okkar, það mættu 5 hundar og þar að auki vorum við með 2. Þetta gekk bara mjög vel og ég held að allir hafi verið ánægðir með þetta uppátæki okkar. Það er í skoðun hvort og hvenær við höfum næstu sýningarþjálfun.

Sýningarþjálfun (myndaalbúm)

Posted in Uncategorized | Comments Off