Snyrting
Schnauzerar eru stríhærðir hundar og þurfa töluvert mikla snyrtingu. Hann er með feld sem samanstendur af tveimur lögum, undirull sem er mjúk og þar yfir stríhár sem myndar yfirfeld einskonar regnkápu. Þeir eru reittir og skafa þarf undirfeldinn reglulega.
Fyrir sýningar þarf að taka hundana og snyrta þá sérstaklega vel, gott er að byrja ca. 2 mánuðum fyrir sýningu til að feldurinn verði góður, en þetta er reyndar mismunandi á milli hunda þar sem hundar hafa misgóðan feld. Því grófari sem feldurinn er því betri og auðveldari er hann.
Kosturinn við að eiga hund sem þarf að snyrta er að þú sleppur við að hafa hár út um allt heimilið og á fötum. Schnauzerinn er einn af fáum hundategundum sem hægt er að mæla með fyrir þá sem eru með hundaofnæmi.
Merkulautar-ræktun sér um að snyrta schnauzer- hunda og kennir grundvallarreglur í umhirðu feldsins við afhendingu hvolpa. |